Thorvaldsensbazarinn Þegar Thorvaldsensfélagið var 25 ára árið 1901 voru félagskonur sammála um að stofna Bazar eða verslun sem væri opin að staðaldri og þar yrðu seldar heimaunnar vörur. Konurnar vissu sem var að margt hagleiksfólk vildi gjarnan selja handverk sitt og drýgja með því tekjurnar eða jafnvel að eiga þá fyrir nauðsynjum. Vörurnar voru seldar í umboðssölu og álagningin var aðeins 10% sem rann í félagssjóð, því öll vinna við verslunina var unnin í sjálfboðavinnu.
Í fyrstu var Bazarinn í leiguhúsnæði að Austurstræti 6 en árið 1905 keyptu Thorvaldsenskonur húseignina Veltusund 3 sem nú er Austurstræti 4 og fluttu Bazarinn þangað og þar hefur hann verið síðan. Ullarvörur voru helsta söluvaran en oft kom fyrir að fólk vildi láta selja fyrir sig ýmsa gamla og sjaldséða muni svo sem silfurkönnur, stokkabelti, millur og men. Útskurðarmeistarar komu með útskurð sinn, aska, ramma, hillur og fleira og gull- og silfursmiðir vildu selja fallegt kvenskart og silfurbúnar svipur svo eitthvað sé nefnt. Handverkið var í fyrirrúmi og ekki má gleyma útsaumuðum dúkum, ofnum borðrenningum og fallega prjónuðum rósavettlingum, peysum og sokkum. Þannig stuðlaði Thorvaldsensfélagið að því með verslun sinni að vera lyftistöng fyrir íslenskan heimilisiðnað og ýmiss konar listiðnað og enn í dag er það markmið Thorvaldsensbazarsins að vera með fallegar handunnar vörur til sölu. |